HÍG logo

Fréttir

  • Glæpavorið heldur áfram

    2. september 2025

    Skollaleik eftir Ármann Jakobsson

    Nú er það prófessor Ármann Jakobsson sem gleður okkur með Skollaleik, fjórðu bókinni um rannsóknarteymið Bjarna, Kristínu, Margréiti og Njál og þá glæpi sem þau þurfa að fást við.

    Lýsing á kápu

    „Á gistiheimili í miðbæ Reykjavíkur finnst erlendur karlmaður látinn. Engin persónuleg gögn eru í hótelherberginu, enginn farsími né heldur skýrar vísbendingar um hvert erindi mannsins var til Íslands. Hið eina sanna sem finnst er miði sem á stendur heimilisfang: Freydísargata 14. Í því húsi búa þrjár konur sem hver virðist hafa sinn djöful að draga.“

    Við óskum Ármanni og íslenskum krimmaunnendum til hamingju með Skollaleik!

  • Gaddakylfan 2024

    2. september 2025

    Hið íslenska glæpafélag kynnir með grunsamlega spennandi gleði og stolti:Gaddakylfan 2024!

    Það gleður okkur ósegjanlega að greina frá því að Gaddakylfan, hin ógnvekjandi og æsispennandi smásagnasamkeppni Hins íslenska glæpafélags, hefur verið endurvakin í samvinnu við Storytel á Íslandi og Iceland Noir!

    Að þessu sinni er óskað eftir glæpa- og/eða spennusmásögum í lengri kantinum, eða frá 6.000 og allt að 10.000 orðum. Keppnin er sem fyrr öllum opin.

    Skila skal handritum í rafrænu formi á netfangið gaddakylfan@hig.is, fyrir miðnætti að kvöldi 29. september 2024.

    Þaðan verða þær framsendar, ólesnar og nafnlaust, til þriggja manna dómnefndar HÍG, Iceland Noir og Storytel. Úrslit verða svo kynnt á sérstökum viðburði á (glæpa)bókmenntahátíðinni Iceland Noir, sem haldin verður dagana 20. – 23. nóvember, þar sem þrjár bestu sögurnar og höfundar þeirra verða í sviðsljósinu.

    Höfundur sögunnar sem dómnefndin metur besta hlýtur Gaddakylfuna að launum, einstakan verðlaunagrip sem hannaður er og mótaður af leirlistarkonunni Koggu, útgáfusamning við Storytel, miða á Iceland Noir og verðlaunaskjal. Höfundar sagnanna í öðru og þriðja sæti fá líka verðlaunaskjal og miða á Iceland Noir. Einnig verða verðlaunasögurnar þrjár og allar aðrar sem dómnefnd metur útgáfuhæfar gefnar út á hljóðbók hjá Storytel.

    Gaddakylfan 2024 er hluti af hátíðarhöldunum Glæpafár á Íslandi, sem félagið stendur fyrir í tilefni 25 ára afmælis síns. Upplýsingar um alla viðburði Glæpafársins má finna á Facebook-síðu félagsins: HÍG - Facebook